Handbolti

Enginn leikur hjá stelpunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stelpurnar þurfa að sætta sig við að æfa í dag.
Stelpurnar þurfa að sætta sig við að æfa í dag.

Ekkert verður af vináttulandsleik Íslands og Spánar sem fram átti að fara í Danmörku í dag. Verkfall flugvallarstarfsmanna á Spáni gerði það að verkum að spænska liðið komst ekki til Danmerkur.

Leikurinn átti að vera lokahnykkurinn í undirbúningi kvennalandsliðsins fyrir EM sem hefst á þriðjudag.

Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari sagði þetta vissulega vera svekkjandi. Reynt hefði verið að fá leik gegn félagsliði í staðinn en það hefði ekki gengið upp.

Liðið verður því að láta æfingu duga að þessu sinni og spilar því ekki leik fyrr en gegn Króatíu á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×