Lífið

Byrjuð með nánum vini sínum

Aftur ástfangin Christina Aguilera er ástfangin á ný, aðeins sex vikum eftir að hún sótti um skilnað frá eiginmanni sínum. nordicphotos/getty
Aftur ástfangin Christina Aguilera er ástfangin á ný, aðeins sex vikum eftir að hún sótti um skilnað frá eiginmanni sínum. nordicphotos/getty

Aðeins sex vikur eru síðan söngkonan Christina Aguilera skildi við eiginmann sinn, Jason Bratman, og hún er þegar orðin ástfangin á ný.

Í einkaviðtali við tímaritið People Magazine viðurkennir söngkonan að hún sé ástfangin af nýja kærasta sínum, Matthew Rutler, sem vann við tökur á kvikmyndinni Burlesque.

„Það ríkir mikil ást á milli okkar. Ég skemmti mér vel með honum og það er nokkuð sem ég hef ekki gert lengi," sagði Aguilera, en hún og Rutler byrjuðu saman stuttu eftir skilnað söngkonunnar.

„Matthew er einstök manneskja. Við vorum góðir vinir á meðan við unnum að kvikmyndinni. Hann er manneskja sem maður getur talað við út í hið óendanlega. Við byrjuðum saman um leið og ég hafði sótt um skilnað. Ég er ekki að ana út í neitt. Ég var að koma úr fimm ára hjónabandi og vil núna einbeita mér að því að vera hamingjusöm."

Þrátt fyrir að vera nýskilin segist Aguilera ekki útiloka þann möguleika að hún gifti sig aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×