Stjarnan mætir KR í úrslitum 25. janúar 2009 21:03 Justin Shouse var stigahæstur hjá Stjörnunni í kvöld Mynd/Anton
Það verða Stjarnan og KR sem leika til úrslita í Subway bikar karla í körfubolta. Þetta varð ljóst í kvöld þegar Stjarnan lagði Njarðvík 83-73 í síðari undanúrslitaleik keppninnar í Ásgarði. Þarna áttust við þjálfararnir Teitur Örlygsson hjá Stjörnunni og Valur Ingimundarson hjá Njarðvík, en þeir gerðu báðir garðinn frægan með liði Njarðvíkur á árum áður. Stjarnan hafði frumkvæðið frá byrjun í leiknum í kvöld og hafði yfir 21-16 eftir fyrsta leikhluta. Liðið hélt fimm stiga forystu í hálfleik og bætti í forskotið í þriðja leikhlutanum. Justin Shouse var að venju atkvæðamestur í liði Garðbæinga en hann skoraði 29 stig og gaf 8 stoðsendingar. Jovan Zdravevski skoraði 24 stig og Kjartan Atli Kjartansson 18 stig. Þá var Fannar Helgason drjúgur í teignum með 18 fráköst. Hjá Njarðvík voru þeir Magnús Gunnarsson (29 stig) og Logi Gunnarsson (23 stig) atkvæðamestir í sóknarleiknum eins og venjulega, en þeir félagar hittu þó aðeins úr 9 af 27 tilraunum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Landsliðsmaðurinn Friðrik Stefánsson skilaði 8 stigum, 5 fráköstum og 5 villum á 34 mínútum. KR og Stjarnan mætast í úrslitaleik Subway bikarsins í Laugardalshöll sunnudaginn 15. febrúar, en KR vann í gærkvöld sigur á Grindavík í fyrri undanúrslitaleiknum. Fyrr í dag varð ljóst að það verða KR og Keflavík sem leika til úrslita í kvennaflokki og því eiga vesturbæingar fulltrúa í báðum flokkum í úrslitunum.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Sjá meira