Körfubolti

Jón Arnór stóð sig vel í fyrsta leiknum með Benetton

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik með KR í vetur.
Jón Arnór Stefánsson í leik með KR í vetur. Mynd/Anton

Jón Arnór Stefánsson spilaði í gær sinn fyrsta leik með ítalska liðinu Benetton Basket Treviso þegar liði vann Carife Ferrara 87-68 í æfingaleik.

Jón Arnór skoraði 10 stig í leiknum og fékk hrós á heimasíðu Benetton fyrir að hafa spilað vel í frumraun sinn með liðinu.

Jón Arnór mun spila sinn fyrsta alvöru leik með Benetton Basket Treviso 7. maí næstkomandi en liðið á tvo leiki eftir af deildarkeppninni en síðan hefst úrslitakeppnin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×