KFÍ á Ísafirði mun í sumar standa fyrir æfingabúðum fyrir yngri flokka í körfubolta á Ísafirði. Búðirnar verða í íþróttahúsinu Jakanum dagana 7. til 14. júní og þar verða þekktir sebneskir þjálfarar að leiðbeina krökkunum.
Þekktasti þjálfarinn er Ratko Joksic sem þjálfaði m.a. CSKA Moskvu í Rússlandi. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu er bent á að kíkja á heimasíðu KFÍ þar sem allar upplýsingar er að finna.
Smelltu hér til að fara á heimasíðu KFÍ.