Körfubolti

Helgi og Jakob atkvæðamiklir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helgi Már Magnússon í leik með KR fyrr á þessu ári.
Helgi Már Magnússon í leik með KR fyrr á þessu ári. Mynd/Anton

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 20 stig er Sundsvall Dragons vann níu stiga sigur á Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær.

Örebro hafði tveggja stiga forystu í hálfleik, 46-44, en Sundsvall stakk af í þriðja leikhluta og vann öruggan sigur.

Þá var Helgi Már Magnússon stigahæstur í liði Solna Vikings sem vann Gothia Basket, 87-72. Helgi skoraði átján stig fyrir Solna.

Bæði Solna og Sundsvall eru á toppi deildarinnar með tólf stig, rétt eins og Norrköping.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×