Körfubolti

Helena með 17 stig í stórsigri TCU í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Rósa

Helena Sverrisdóttir var aftur komin í byrjunarlið TCU sem vann 65-44 sigur á ULM í bandaríska háskólaboltanum í nótt. Helena var önnur stigahæst hjá TCU-liðinu með 17 stig á 26 mínútum. Þetta var ellefti heimasigur TCU í röð í Daniel-Meyer Coliseum.

Helena var auk stiganna 17 með 8 fráköst, 4 stolna bolta og 2 stoðsendingar. Hún hitti úr 6 af 11 skotum sínum þar af 2 af 4 fyrir utan þriggja stiga línuna.

Helena spilaði þó ekki sem leikstjórnandi í nótt heldur byrjaði í stöðu framherja eins og hún spilaði á sínu fyrsta ári með TCU-liðinu. Hún hafði aðeins skorað samanlagt 9 stig í síðustu tveimur leikjum og þjálfarinn Jeff Mittie ákvað að gera breytingu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×