Friðrik búinn að tapa átta leikjum í röð í Hólminum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2009 18:15 Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur. Mynd/Valli
Það hefur gengið illa hjá Friðriki Ragnarssyni að stjórna liði sínu til sigurs í Stykkishólmi en Friðrik mætir með sína menn í Grindavík í Hólminn á eftir til þess að reyna vinna þar sinn fyrsta sigur í sex ár. Annar leikur Snæfells og Grindavíkur í undanúrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla hefst klukkan 19.15 og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Liðin hans Friðriks hafa tapað átta síðustu leikjum sínum í Stykkishólmi þar af eru fjórir þeirra í úrslitakeppninni. Friðrik hefur tapað öllum fimm leikjum sínum í Hólminum sem þjálfari Grindavíkur en enginn þeirra hefur þó unnist með meira en níu stigum. Grindavík vann 28 stiga sigur í fyrsta leik einvígisins, 110-82, og því ætti liðið að vera í góðri aðstöðu til að yfirbuga Stykkishólmsgrýluna í leiknum í kvöld. Það munaði litlu að Grindavík næði því í úrslitakeppninni í fyrra en Snæfell sló þá Grindavíkur-liðið út úr úrslitakeppninni með tveggja stiga sigri, 116-114, eftir æsispennandi framlengdan leik. Friðrik stjórnaði liði síðast til sigurs í Fjárhúsinu í Stykkishólmi 13. febrúar 2003 þegar Njarðvíkurliðið vann þar þriggja stiga sigur, 63-60. Teitur Örlygsson, núverandi þjálfari Stjörnunnar, átti mestan þátt í að Njarðvík vann þann leik en hann skoraði 8 af 14 stigum sínum á síðustu fjórum mínútum leiksins. Síðustu átta leikir liða Friðriks Ragnarssonar í Hólminum: Með Grindavík 14. apríl 2009 (úrslitakeppni) Snæfell +2 í framlengingu (116-114) 10. apríl 2009 (úrslitakeppni) Snæfell +8 (79-71) 1. mars 2009 (deild) Snæfell +1 (89-88) 7. mars 2008 (deild) Snæfell +3 (75-72) 1. mars 2007 (deild) Snæfell +9 (83-74) Með Njarðvík 25. mars 2004 (úrslitakeppni) Snæfell +2 (91-89) 19. mars 2004 (úrslitakeppni) Snæfell +10 (97-87) 26. febrúar 2004 (deild) Snæfell +14 (85-71)
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Sjá meira