Nick Bradford inni í myndinni hjá Grindvíkingum 14. janúar 2009 19:50 Nick Bradford var bæði góður og litríkur leikmaður þegar hann spilaði með Keflavík á árunum 2003-05
Grindvíkingar skoða nú alvarlega þann möguleika að bæta við sig erlendum leikmanni í baráttunni í Iceland Express deildinni. Orðrómur hefur verið á kreiki um að Grindvíkingar væru í viðræðum við hinn litríka Nick Bradford sem gerði garðinn frægan með Íslandsmeisturum Keflavíkur fyrir nokkrum árum. Bradford hefur verið að spila í Frakklandi undanfarin ár og er góður kunningi Arnars Freys Jónssonar, leikstjórnanda Grindvíkinga og fyrrum leikmanni Keflavíkur. Óli Björn Björgvinsson formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur staðfesti í samtali við Vísi í kvöld að Bradford væri einn nokkurra leikmanna sem Grindavík væri að skoða ef til þess kæmi að félagið bætti við sig erlendum leikmanni. "Við Friðrik (Ragnarsson) þjálfari vorum eiginlega búnir að blása það endanlega af milli jóla og nýárs að bæta við okkur útlendingi, en svo komu nokkrir menn að máli við mig á dögunum og viðruðu þá hugmynd að reyna að safna fé fyrir erlendum leikmanni," sagði Óli Björn í samtali við Vísi. Þetta er ekki ósvipað og Borgnesingar gerðu þegar þeir söfnuðu fyrir Igor Beljanski fyrr í vetur. Allir lögðust á eitt til að styrkja liðið. "Af hverju ættum við ekki að geta þetta úr því Borgnesingar gerðu það?" sagði Óli Björn. Hann reiknar með því að ákvörðun verði tekinu um það á allra næstu dögum hvort grundvöllur sé fyrir því að fá útlending til liðsins. Grindavík er í öðru sæti í Iceland Express deildinni með 20 stig, fjórum stigum minna en topplið KR, en þessi lið hafa verið í nokkrum sérflokki það sem af er vetrar og flestir tippa á að þau leiki til úrslita í vor.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjá meira