Körfubolti

Jón Arnór með 10 stig á 17 mínútum í fyrsta leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson komst vel frá fyrsta leiknum sínum eftir bakmeiðslin en hann skoraði 10 stig á aðeins 17 mínútum þegar CB Granada tapaði 65-77 á útivelli á móti Estudiantes um helgina.

Jón Arnór hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum sínum í leiknum en auk þess að skorað 10 stig, tók hann 3 fráköst, gaf 1 stoðsendingu og fiskaði fjórar villur. Jón spilaði nákvæmlega í 16 mínútur og 42 sekúndur og náði á því að vera annar stigahæsti leikmaður liðsins.

Næsti leikur CB Granade er á móti Lagun Aro GBC á laugardaginn en liðið hefur nú dregist niður í fallbaráttu deildarinnar eftir þrjú töp í röð og fjögur töp í síðustu fimm leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×