Körfubolti

TCU féll úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/TCU/Keith Robinson

Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU töpuðu í nótt fyrir South Dakota í fyrstu umferð NCAA-úrslitakeppninnar, 90-55.

South Dakota er talið sjöunda sterkasta lið deildarinnar og var því við ramman reip að draga fyrir TCU. Helena var stigahæsti leikmaður liðsins með tólf stig auk þess sem hún tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Helena skoraði öll sín stig í síðari hálfleik.

Þar með er tímabilinu lokið hjá TCU en liðið vann alls 20 af 31 leik sínum á tímabilinu. South Dakota var að vinna sinn átjánda sigur í röð en liðið hefur aðeins tapað tveimur leikjum á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×