Körfubolti

Helena stiga- og stoðsendingahæst í TCU-sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir á ferðinni með TCU.
Helena Sverrisdóttir á ferðinni með TCU. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU byrja vel í bandaríska háskólaboltanum en liðið vann 63-52 sigur á Fresno State í nótt. Helena var stiga- og stoðhendingahæst í liði TCU en hún var með 15 stig, 7 stoðsendingar og 5 fráköst í leiknum.

TCU byrjaði leikinn ekki vel, lenti 8-21 undir og var þremur stigum undir í hálfleik, 30-33. Helena leiddi endurkomu liðsins í seinni hálfleik þar sem hún hitti úr 4 af 6 skotum sínum og var með 11 af 15 stigum og 4 af 7 stoðsendingum sínum.

TCU hefur nú unnið tvo fyrstu leiki sína á tímabilinu og Helena er með 14,0 stig, 8,5 stoðsendingar og 7,5 fráköst að meðaltali í þessum tveimur fyrstu leikjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×