Þjálfaramet í hættu í úrslitaleikjum Powerade-bikarsins í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2009 11:30 Benedikt Guðmundsson getur í dag orðið fyrsti þjálfarinn til að gera karla- og kvennalið að fyrirtækjameisturum. Mynd/Vilhelm
Úrslitaleikir Powerade-bikars karla og kvenna fara fram í Laugardalshöllinni í dag. Kvennalið KR og Hamars mætast klukkan 13.00 og klukkan 15.30 hefst leikur karlaliða Njarðvíkur og Grindavíkur. Kvennalið KR og karlalið Grindavíkur töpuðu úrslitaleikjunum keppninnar í fyrra og eru bæði sigurstranglegri í leikjum dagsins. Þetta verður fyrsti úrslitaleikur kvennaliðs Hamars frá upphafi en liðið komst í úrslitaleikinn með því að vinna Íslandsmeistara Hauka á þeirra eigin heimavelli. KR-konur eru hinsvegar að spila sinn fimmta úrslitaleik í þessari keppni en þær hafa þó ekki unnið fyrirtækjabikarinn í níu ár. Þjálfari Hamars er Ágúst Björgvinsson sem gerði Hauka tvisvar sinnum að fyrirtækjabikarmeisturum á sínum tíma. Hann getur orðið fyrsti kvennaþjálfarinn til þess að vinna þessa keppni með tveimur félögum. Benedikt Guðmundsson, gerði karlalið KR að Powerade-meisturum í fyrra og getur nú endurtekið leikinn með kvennalið KR. Hann yrði þá fyrsti þjálfarinn til að vinna þessa keppni með bæði karla- og kvennalið. Það er ljóst að saga keppninnar verður endurskrifuð í karlaflokki því Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur og Valur Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur, geta báðir orðið fyrstu þjálfararnir til þess að vinna þessa keppni með tveimur liðum. Njarðvík vann undir stjórn Friðriks árið 2001 og 2003 og Valur gerði Tindastól að fyrirtækjabikarmeisturum árið 1999.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira