Körfubolti

Helgi Már og félagar töpuðu toppslagnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helgi Már Magnússon í leik með KR.
Helgi Már Magnússon í leik með KR. Mynd/Anton

Helgi Már Magnússon og félagar í Solna töpuðu í kvöld fyrir Norrköping, 92-88, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinn í körfubolta.

Solna byrjaði betur í leiknum komst í tíu stiga forystu í öðrum leikhluta, 33-23. En þá snerist leikurinn algerlega við og var staðan í hálfleik, 46-42, Norrköping í vil.

Norrköping hélt forystunni í síðari hálfleik en Solna náði mest að minnka muninn í eitt stig þegar tæp mínúta var til leiksloka. Gestirnir skoruðu þó þrjú síðustu stig leiksins og fögnuðu góðum sigri.

Með sigrinum náði Norrköping að saxa forystu Solna á toppi deildarinnar í tvö stig. Helgi Már lék í 23 mínútur í leiknum, skoraði tíu stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×