Oddaleikur um titilinn: Framlag Þorleifs skiptir Grindavík miklu máli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2009 13:30 Þorleifur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur er mikilvægur fyrir liðið. Mynd/Daníel
KR og Grindavík mætast í fimmta sinn á níu dögum í kvöld þegar liðin spila hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í DHL-Höllinni í Frostaskjóli. Bæði lið hafa unnið tvo leiki í einvíginu og það er gaman að bera saman frammistöðu leikmanna liðanna í sigur- og tapleikjum. Það munar mestu á framlagi Grindvíkingsins Þorleifs Ólafssonar þegar bornir eru saman sigur- og tapleikir liðanna í einvíginu. Þorleifur hefur nefnilega skilað 12,5 fleiri framlagsstigum í sigurleikjum Grindavíkur en hann hefur gert í tapleikjunum. Þorleifur er með 11,5 stig, 7,0 fráköst og 2,5 stoðsendingar að meðaltali í sigrunum þar sem hann er með 15,0 í framlagi í leik. Í tapleikjunum hefur hann hinsvegar aðeins skilað 2,0 framlagsstigum til síns liðs en í þeim er hann með 6 stig, 1 frákast og 1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Þorleifur hefur hitt úr 53,3 prósent skota sinna í sigurleikjunum en aðeins 29,4 prósent skota sinna í tapleikjunum. Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, kemur næstur á eftir Þorleifi en það munar 10 framlagsstigum á frammistöðu hans í sigur- og tapleikjunum í einvíginu. Í sigurleikjunum tveimur hefur Fannar skorað 21,0 stig, tekið 9,5 fráköst og skilað 22,5 framlagsstigum til KR-liðsins. Í tapleikjunum er Fannar að spila í 6,0 færri mínútur að meðaltali og þar er framlag hans bara upp á 12,5. Fannar hefur skorað 12,0 stig og tekið 5,0 fráköst að meðaltali í töpunum tveimur. Næstir kom þeir Brenton Brimingham í Grindavík og Helgi Már Magnússon í KR en þeir eru að skila 9,5 fleiri framlagsstigum í sigurleikjunum en þeir hafa gert í tapleikjunum. Brenton er með 22,5 stig, 8,0 fráköst, 6,0 stoðsendingar og 4,0 stolna bolta að meðaltali í sigrunum (34,5 í framlagi) en í tapleikjunum er hann með 13,0 stig, 8,0 fráköst, 6,0 stoðsendingar og 1,5 stolna bolta að meðaltali (25,0 í framlagi). Helgi Már er með 16,5 stig, 6,0 fráköst og 3,5 stoðsendingar að meðaltali í sigrunum þar sem hann hefur hitt úr 58,3 prósent skota sinna (34,5 í framlagi) en í tapleikjunum er hann með 14,0 stig, 8,0 fráköst og enga stoðsendingu að meðaltali (13,0 í framlagi) þar sem 42,1 prósent skota hans hafa ratað rétta leið. Mesti munur á framlagi í leik í sigur- og tapleikjum í einvíginu: Þorleifur Ólafsson, Grindavík +12,5Fannar Ólafsson, KR +10,0 Brenton Birmingham, Grindavík +9,5Helgi Már Magnússon, KR +9,5Guðlaugur Eyjólfsson, Grindavík +7,0Nick Bradford, Grindavík +5,0Jason Dourisseau, KR +4,5Skarphéðinn Freyr Ingason, KR +1,5Jakob Örn Sigurðarson, KR +1,0 Nökkvi Már Jónsson, Grindavík +1,0 Páll Kristinsson, Grindavík +1,0 Mesti munur á stigaskori í leik í sigur- og tapleikjum í einvíginu: Brenton Birmingham, Grindavík +9,5 Fannar Ólafsson, KR +9,0Guðlaugur Eyjólfsson, Grindavík +8,5Þorleifur Ólafsson, Grindavík +5,5Nick Bradford, Grindavík +4,5 Mesti munur á fráköstum í leik í sigur- og tapleikjum í einvíginu: Þorleifur Ólafsson, Grindavík +6,0 Fannar Ólafsson, KR +4,5Jakob Örn Sigurðarson, KR +3,0Guðlaugur Eyjólfsson, Grindavík +0,5
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Sjá meira