Fyrstu deildarmeistarnir sem vinna ekki leik í úrslitakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. apríl 2009 10:15 Díana Guðjónsdóttir, þjálfari Hauka. Mynd/Anton
Haukakonur urðu í gær fyrstu deildarmeistararnir í sögu úrslitakeppni kvenna í handbolta sem ná ekki að vinna leik í úrslitakeppni. Haukar töpuðu þá öðrum leiknum í röð á móti Fram í Safamýri eftir framlengdan leik í undanúrslitaeinvígi liðanna í N1 deild kvenna. Haukaliðið vann 18 af 21 leik sínum í deildarkeppninni og tapaði aðeins einum. Haukar unnu þar tvo af þremur leikjum sínum á móti Fram en einum leiknum lauk með jafntefli. Haukaliðinu hefur ekki gengið vel í "úrslitaleikjum" sínum í vetur. Liðið tapaði 27-28 fyrir Stjörnunni í úrslitaleik deildarbikarsins og síðan 24-30 á heimavelli á móti Stjörnunni í undanúrslitum SS-bikarsins. Haukarnir töpuðu síðan báðum leikjunum á móti Fram í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Fjögur af fimm töpum vetrarins hafa því komið í svokölluðum úrslitaleikjum. Úrslitakeppnin fer nú í fyrsta sinn fram síðan árið 2005. Víkingsliðið frá árinu 2000 er síðasta deildarmeistaraliðið sem tókst ekki að tryggja sér sæti í lokaúrslitum en liðið vann engu að síður 2-0 sigur á Haukum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem þá innihélt átta lið. Allir aðrir deildarmeistarar í sögu úrslitakeppni kvenna frá 1992-2005 hafa komist alla leið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn og níu þeirra hafa síðan tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.
Olís-deild kvenna Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira