Körfubolti

Ellefu stig frá Jóni Arnóri dugðu ekki Benetton

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson skoraði 11 stig fyrir Benetton.
Jón Arnór Stefánsson skoraði 11 stig fyrir Benetton. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson átti sinn besta leik Benetton Treviso í öðrum leik liðsins í átta liða úrslitum úrslitakeppni ítalska körfuboltans en það dugði þó ekki til á móti La Fortezza Bologna. Bologna vann leikinn 94-81 og jafnaði einvígið í 1-1.

Jón Arnór var ekki í byrjunarliðinu en kom með 11 stig og 3 stoðsendingar á 24 mínútum inn af bekknum. Jón Arnór hitti úr 5 af 10 skotum sínum og tók 2 fráköst.

Jón Arnór hafði aðeins skorað 2 stig á 36 mínútum í fyrstu þremur leikjum sínum með Benetton en þeir höfðu samt allir unnist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×