HK-menn fyrstir til að vinna Hauka í vetur - rassskelltu meistarana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2009 20:50 Sveinbjörn Pétursson átti frábæran leik í marki HK. Mynd/Stefán
HK vann glæsilegan sjö marka sigur á Íslandsmeisturum Hauka, 26-19, í N1-deild karla í handbolta í kvöld en þetta var fyrsta tap Haukanna á þessu tímabili. HK sá til þess að Haukar eru bara með þriggja marka forskot þegar deildin fer í jóla- og EM-frí en næstu leikir eru ekki fyrr en í febrúar. HK náði frumkvæðinu strax í fyrri hálfleik og var 12-6 yfir í hálfleik. HK náði síðan mest tíu marka forskoti í seinni hálfleik, Haukarnir minnkuðu muninn í fjögur mörk en komust ekki nær og urðu að sætta sig við fyrsta tap tímabilsins í síðasta leik fyrir frí. Sveinbjörn Pétursson átti frábæran leik í marki HK og lokaði markinu fyrir meistarana á löngum tímum í leiknum. Sveinbjörn varði alls 23 skot en markahæstur hjá HK var Valdimar Þórsson með 7 mörk. Atli Ævar Ingólfsson skoraði 6 mörk fyrir HK. HK vann þarna sinn fjórða sigur í röð í deild og bikar en liðið komst fyrir vikið upp að hlið FH, Akureyrar og Vals í 2. til 5. sæti deildarinnar. HK er með slakasta árangurinn í innbyrðisviðureignum þessara liða og kemst því ekki í deildarbikarinn.
Olís-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Fram - Haukar | Geta haldið fullu húsi Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Sjá meira