Körfubolti

Helena og félagar fljótar að komast aftur á sigurbraut

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Vilhelm
Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU-liðinu unnu öruggan 85-55 sigur á nágrönnum sínum í Texas Southern í bandaríska háskólaboltanum í kvöld en leikurinn hófst á hádegi að staðartíma. Helena var stigahæst ásamt öðrum leikmanni auk þess að gefa flestar stoðsendingar.

Helena spilaði í 22 mínútur í leiknum og var með 12 stig, 6 stoðsendingar, 3 fráköst og 3 stolna bolta en hún var með 8 stig og 5 stoðsendingar í fyrri hálfleik.

TCU-liðið hefur nú unnið 3 af 4 leiki sína á tímabilinu en Helena og félagar voru fljótar að komast á sigurbraut eftir að hafa tapað sínum fyrsta leik um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×