Körfubolti

Henning: Spiluðu eins og ég vissi að þær gætu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Henning Henningsson, landsliðsþjálfari.
Henning Henningsson, landsliðsþjálfari.

Henning Henningsson, landsliðsþjálfari, sagði leikmenn íslenska landsliðsins hafa loksins sýnt sitt rétta andlit er liðið vann sigur á Írlandi í kvöld, 77-68, í B-deild EM í körfubolta kvenna.

Þetta var annar sigur liðsins í riðlinum og sá fyrsti undir stjórn Hennings sem tók við liðinu í vor. Hann hafði stefnt að sigri í þremur af fimm leikjum liðsins í núverandi törn en liðið hefur nú unnið einn af fjórum. Lokaleikur liðsins í riðlinum verður gegn Svartfjallalandi á laugardaginn.

„Þær spiluðu eins og ég vissi að þær gætu gert," sagði Heninng eftir leikinn í kvöld. „Við náðum að halda haus allan tímann sem skiptir miklu máli því þessi lið eru fljót að refsa fyrir mistökin okkar. Það sýndi sig í leiknum gegn Slóveníu ytra um helgina hversu dýrkeypt það getur verið," sagði Henning. Ísland var með forystu í upphafi síðari hálfleiksins í þeim leik en Slóvenar gerðu út um hann með 19-0 spretti á stuttum leikkafla í þriðja leihkluta.

„En í kvöld hleyptum við þeim aldrei upp að körfunni og þær náðu aldrei að stilla sína strengi," bætti hann við.

Helena Sverrisdóttir var tæp fyrir leikinn þar sem hún fékk högg á síðuna í leiknum gegn Slóveníu. „Hún átti gríðarlega góðan leik. Hún var vissulega ekki heil en breytti bara leik sínum í kvöld. Hún skilaði sínu mjög vel í kvöld."

Birna Valgarðsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með 21 stig auk þess sem hún tók ellefu fráköst. „Birna skilaði bæði stórum tölum auk þess sem hún hélt atkvæðamesta leikmanni Íra í örfáum stigum. Hún átti stjörnuleik sem okkur munaði svo sannarlega um."

„En ég var mjög sáttur við allt liðið. Ég er virkilega ánægður með að þær skyldu stíga upp og sýna sitt rétta andlit. Nú er bara einn leikur eftir og þurfum við helst að vinna hann enda skemmtilegra að vinna leiki en tapa þeim."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×