Körfubolti

Helena með níu stig í sigri TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU.
Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU. Mynd/TCU/Keith Robinson

TCU komst í nótt áfram í þriðju umferð WNIT-úrslitakeppninnar þar sem bestu liðin keppa af þeim sem komust ekki í NCAA-úrslitakeppnina.

TCU vann öruggan sigur, 85-56, á heimavelli í nótt. Helena lék í 22 mínútur í leiknum og tók fimm fráköst þess sem hún stal einum bolta. Skotnýting hennar hefur þó oft verið betri.

TCU mætir nú öðru liði frá Texas í þriðju umferðinni, Texas Tech, á miðvikudaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×