Keflavík getur orðið deildarmeistari í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. mars 2008 18:28 Bobby Walker og félagar í Keflavík geta orðið deildarmeistarar í kvöld. Mynd/E. Stefán
Ef Keflavík vinnur Skallagrím í Borgarnesi í kvöld tryggir liðið sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Það er annars nóg um að vera í körfunni í kvöld. Keflavík verður deildarmeistari með sigri í kvöld þar sem liðið nær þá tveggja stiga forystu á KR þegar aðeins ein umferð er eftir. Keflavík er með betri árangur en KR í innbyrðisviðureignum liðanna og því öruggt með fyrsta sætið. Tveir síðustu leikirnir í næstsíðustu umferð Iceland Express-deildar karla fara fram í kvöld. Hinn leikurinn er viðureign Hamars og Stjörnunnar í Hveragerði en fyrrnefnda liðið er þegar fallið í 1. deildina. Stjarnan á hins vegar enn góðan möguleika á því að ná áttunda sætinu en til þess þarf liðið nauðsynlega að vinna í kvöld. Ef það verður niðurstaðan verða bæði Tindastóll og Stjarnan með sextán stig í 9.-10. sæti en sigurvegari þess leiks á möguleika að ná Þór að stigum ef Akureyringar tapa fyrir Snæfelli í lokaumferðinni. Snæfellingar munu hins vegar ekkert gefa eftir í þeim leik þar sem liðið á í harðri baráttu við Njarðvík um 4. sætið í deildinni og þar með heimavallarréttinn í viðureign liðanna í úrslitakeppninni sem er framundan. Báðir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15. Úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna hefst Í kvöld hefst svo úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna er KR tekur á móti Grindavík klukkan 19.15. Þessi lið mættust í lokaumferð deildarkeppninnar þar sem heimavallarrétturinn var undir. Grindavík vann að vísu leikinn en ekki með nægilega stórum mun til að fá heimavallarréttinn. Hann gæti skipt sköpum í þessu einvígi þar sem bæði KR og Grindavík hafa unnið hvort annað á heimavelli í vetur en að sama skapi tapað á útivelli í innbyrðis viðureignum liðanna. Keflavík og Haukar mætast í hinni viðureigninni í úrslitakeppninni en fyrstu leikur liðanna verður í Keflavík á morgun klukkan 17.00. Lokaumferð 1. deildar karla Nú þegar er ljóst að Breiðablik er deildarmeistari 1. deildar karla og er þar með búið að tryggja sér sæti í Iceland Express deild karla á næsta keppnistímabili. Fjögurra liða úrslitakeppni fer fram að deildarkeppninni lokinni til að skera úr um hvaða lið fylgir Blikum upp í efstu deild. Það er einnig ljóst hvaða fjögur lið það verða - FSu, Valur, Haukar og Ármann/Þróttur. FSu og Valur hafa þegar tryggt sér heimavallarréttindin en Ármann/Þróttur gæti náð fjórða sætinu af Haukum með sigri á Þrótti úr Vogum í kvöld. En þá verða Haukar að tapa fyrir FSu á heimavelli. Verði Haukar og Ármann/Þróttur jöfn að stigum er síðarnefnda liðið ofar í stigatöflunni. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 20.00 nema leikur Hattar og Breiðabliks sem hófst klukkan 18.30. Aðrir leikir kvöldsins: Þróttur Vogum - Ármann/Þróttur Reynir Sandgerði - Valur Haukar - FSu Þór Þorlákshöfn - KFÍ
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira