Körfubolti

Helena með níu stig í nótt

Elvar Geir Magnússon skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.

Helena Sverrisdóttir skoraði níu stig fyrir CTU í nótt þegar liðið vann BYU 72-61. Þetta var síðasti deildarleikur CTU en framundan er úrslitakeppni um næstu helgi.

Þar keppir TCU um laust sæti í 64-liða úrslitum háskólaboltans í Bandaríkjunum sem er oftast kallað March Madness.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×