Skoruðu 5 stig í 1. leikhluta en unnu samt 26. febrúar 2008 09:28 San Antono setti félagsmet með aðeins 5 stigum í fyrsta leikhluta, en það kom ekki að sök Nordic Photos / Getty Images
Meistarar San Antonio Spurs voru ansi lengi í gang í leik sínum við Atlanta á heimavelli í nótt og settu félagsmet ðeins 5 stig í fyrsta leikhlutanum. Það kom þó ekki að sök því heimamenn unnu sigur 89-74. "Við getum ekki spilað lélegri körfubolta en þetta, ég huggaði mig við það," sagði Tony Parker hjá San ANtonio sem skoraði 15 stig og gaf 9 stoðsendingar. Tim Duncan skoraði 23 stig og hirti 10 fráköst, en hjá Atlanta var Joe Johnson stigahæstur með 17 stig. Kurt Thomas spilaði sinn fyrsta leik fyrir San Antonio í nótt og hirti 9 fráköst á aðeins 13 mínútum. Toronto vann nauman útisigur á Indiana 102-98 þar sem Chris Bosh skoraði 24 stig og hirti 10 fráköst fyrir Kanadamennina en Danny Granger skoraði 20 stig og hirti 10 fráköst fyrir Indiana og Marquis Daniels var sömuleiðis með 20 stig. Dallas lagði Chicago á heimavelli 102-94 þar sem Dirk Nowitzki skoraðai 29 stig og hirti 10 fráköst fyrir heimamenn og Jason Kidd spilaði sinn fyrsta heimaleik fyrir Dallas í rúm 11 ár. Ben Gordon skoraði 25 stig fyrir Chicago. Detroit hélt áfram sigurgöngu sinni í vestrinu með 98-93 sigri á Denver á útivelli. Það var sem fyrr jafn og stöðugur leikur sem tryggði Detroit sigurinn en þeir Tayshaun Prince, Rip Hamilton og Chauncey Billups skoruðu allir 20 stig. Allen Iverson skoraði 28 stig fyrir Denver og Carmelo Anthony var með 23 stig og 11 fráköst, en vítanýting Denver var léleg undir lokin og það varð liðinu dýrt. Washington vann nokkuð óvæntan útisigur á New Orleans 95-92 þar sem Deshawn Stevenson tryggði Washington sigur með þriggja stiga körfu í blálokin. Chris Paul skoraði 22 stig fyrir New Orleans en Stevenson var með 33 stig hjá Washington. Loks vann Boston auðveldan útisigur á LA Clippers 104-76. Paul Pierce og James Posey skoruðu 17 stig fyrir Boston og Ray Allen 15 en Tim Thomas var atkvæðamestur í meiðslum hrjáðu liði Clippers með 15 stig og 9 fráköst. Staðan í NBA
NBA Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira