Körfubolti

Jón Arnór og félagar í góðum málum

AFP

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Lottomatica Roma hafa náð 2-0 forystu gegn Air Avellino í undanúrslitum úrslitakeppni ítölsku A-deildarinnar. Roma vann annan leikinn 85-78 á útivelli í kvöld og geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í þriðja leiknum á þriðjudagskvöldið.

Jón Arnór skoraði 2 stig í leiknum í kvöld og hitti reyndar frekar illa, en hans menn eru engu að síður komnir í mjög góð mál í einvíginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×