Viðskipti innlent

Bakkavör og Össur hækka

Bakkabræður, þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir.
Bakkabræður, þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Bakkavör hefur hækkað um 1,57 prósent í dag og Össurar um 0,91 prósent. Þetta eru einu hækkanir dagsins. Á móti hefur gengi bréfa í Marel lækkað um 1,48 prósent og í Færeyjabanka um 1,45 prósent.

Þetta eru jafnframt einu hreyfingar dagsins.

Úrvalsvísitalan stendur nær óbreytt, hefur lækkað um 0,07 prósent og stendur í 662 stigum.

Viðskipti á hlutabréfamarkaði eru fjórtán talsins upp á 47 milljónir króna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×