Ákvað að sitja lengur en Ferguson 21. maí 2008 10:16 Sigurður Ingimundarson verður áfram í Keflavík Mynd/Vilhelm
Sigurður Ingimundarson þjálfari segir spennandi tíma fram undan í Keflavík og segir það helstu ástæðuna fyrir því að hann framlengdi samning sinn við félagið í gær. Sigurður lagðist undir feld eftir að Keflvíkingar urðu Íslandsmeistarar fyrir nokkru og sagðist ætla að íhuga framtíðina í rólegheitum. Hann hefur verið lengi við stjórnvölinn í Keflavík, en hefur sannarlega ekki sagt sitt síðasta. "Ég var nú bara að hugsa um hvort maður væri búinn að vera of lengi í þessu, en svo ákvað ég að reyna að vera lengur en Alex Ferguson," sagði Sigurður í léttum tón í samtali við Vísi í morgun. "Það eru spennandi tímar fram undan hjá okkur. Það er búið að ganga vel og menn hérna eru stórhuga og vilja fara lengra með þetta. Karfan er að fara á hærra plan og það er mikil körfuboltastemming hérna í Keflavík," sagði Sigurður. "Það er gaman að vinna titla, en það er líka gaman að byggja upp lið sem er alltaf að keppa um titla og er stöðugt. Við viljum líka hafa það í bakhöndinni að gera betri hluti í Evrópukeppni því við teljum okkur vera fullfæra um það. Við erum ekki búnir að taka neina ákvörðun um Evrópukeppni núna, en við viljum hafa það í bakhöndinni," sagði Sigurður. Hann segir það hafa spilað inn í ákvörðun sína hvernig færi með leikmannamálin hjá Keflavík, en félagið framlengdi samninga við sjö leikmenn í gær - þar af lykilmenn eins og Jón Norðdal Hafsteinsson og Þröst Leó Jóhannsson. "Það er auðvitað mikilvægt að halda í lykilleikmenn og við erum með nokkra unga og efnilega leikmenn sem munu koma meira inn í þetta á næstu árum," sagði Sigurður.
Dominos-deild karla Mest lesið Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ Sjá meira