Arnar Jónsson leikari og Vignir Freyr Andersen, lóttókynnir og einn eigandi golfverslunarinnar Hole in one, eru gamlir golffélagar. „Fyrsta golfferðin út fyrir landsteinana var farin til Suður-Englands,“ minnast þeir á. „En mikið er um fína golfvelli fyrir utan stórborgir,“ segir Arnar og vísar til þeirrar vakningar sem orðin er í því að tengja golfferðir til útlanda við ferðir á sögufræga staði.
Golfið snýst um meira en bara kúlur og prik,“ nefnir Arnar, sem aldrei fær nóg af því að ræða um hinar andlegu hliðar golfsins. „Í golfinu er maður í innri glímu við sig sjálfan enda krefst golfið góðrar einbeitingar. Golfið gerir heilmikið fyrir sálarlífið.“
„Það eru engir tveir dagar eins í golfinu,“ segir Vignir og bætir við að á hverjum degi vakni menn endurnærðir. Veðrið sé síbreytilegt og félagarnir sömuleiðis. „Golfið býður þannig alltaf upp á eitthvað nýtt.“
Allir eiga sína góðu og slæmu daga í golfinu, og Vignir átti sinn slæma dag á móti á Hellu nýverið. Hann er með 3,2 í forgjöf en lék áttundu holuna, sem er stutt par-3 hola, á fjórtán höggum. „Það er ekki hægt annað en að hlæja að þessu,“ segir Vignir, sem fékk viðurnefnið Vignir fjórtándi af félögum sínum í hollinu fyrir frammistöðuna.
Í golfinu er mikið atriði að stilla sig inn á það hugarfar að vera ekki of upptekinn af því að gera mistök. En þegar stressið fer að ná tökum á kylfingnum er eins og hvert feilhöggið á fætur öðru sé slegið.
„Golfið er spennandi leikur. Í leiknum verður maður að tæma hugann og láta ekki hausinn rugla í sér,“ segir leikarinn. Kylfingurinn er eilíflega í einhvers konar sjálfsskoðun þar sem innsæið getur skipt sköpum. Golfið gengur svolítið út á það að þjálfa sig í að treysta á eigið innsæi. „Þegar feilhöggin koma spyr maður yfirleitt sjálfan sig hvað hafi eiginlega gerst,“ segja þeir.
„Bestu höggin verða yfirleitt við þær aðstæður þegar það er enginn asi á mannskapnum,“ segir Arnar og bætir við að „golfarinn verður að reyna að læra að sleppa takinu og gleyma sér í leiknum. Ekki reyna að stjórna því sem eigi er unnt að stjórna.“
Allir vita að lítið er til gagns að ætla sér að stjórna straumnum í ánni. „Í golfinu er maður einhvern veginn að leita eftir rétta taktinum sem virkar fyrir mann hverju sinni,“ segir Vignir. Deepak Chopra, sem fjallað hefur um andlegar hliðar golfsins, hefur bent á að kylfingurinn eigi að láta leikinn leika sig, í stað þess að ætla sér að stjórna leiknum um of sjálfur.