Látið þið nornina okkar í friði Óli Tynes skrifar 18. apríl 2008 15:46 Nornin í Warboys skólamerkinu.
Íbúar þorpsins Warboys í Englandi eru rífandi ósáttir við þá ákvörðun skólastjórnar þorpsins að breyta merki skólans. Það hefur ævinlega verið mynd af galdranorn ríðandi á kústi sínum. Þetta merki er á skólabúningum barnanna og einnig á klukkuturni skólans. Í rökstuðningi fyrir því að breyta merkinu segir skólastjórnin að sumir foreldrar kjósi að senda börn sín ekki í skólann og að ein ástæðan sé nornin góða. Kennarar hafi einnig gefið merkið upp sem eina ástæðu þess að þeir sæktu ekki um vinnu. Skólastjórnin bætir því við að galdrar og hrekkjavökur séu ekki hluti af námsefninu, og að skólar reyni að forðast tengingar við slíkt. Þetta eru íbúarnir ósáttir við og hafa hafið undirskriftaherferð til varnar norninni. Það er svo sögulega áhugavert að það var einmitt í þorpinu Warboys sem nornir voru síðast hengdar í Englandi. Árið 1593 voru Alice Samuels, John eiginmaður hennar og Agnes dóttir þeirra hengd fyrir galdra. Það var tíu ára stúlka sem fyrst bar fram ákæru um að fjölskyldan bæri ábyrgð á flogaköstum sem hún fengi. Fjórar systur hennar og þjónustufólk á heimilinu tóku svo undir ákæruna.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira