Handbolti

Árni Þór samdi við Akureyri

Árni Þór Sigtryggsson skrifaði í gærkvöld undir tveggja ára samning við Akureyri og mun því leika með uppeldisfélagi sínu næsta vetur í N1 deildinni.

Árni var áður á mála hjá spænska liðinu Granolles en fékk sig lausan undan samningi þar í sumar. Þetta er augljóslega mikill hvalreki fyrir norðamenn fyrir átök vetrarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×