Körfubolti

Annað tap hjá TCU

Helena Sverrisdóttir og félagar í bandaríska háskólaliðinu TCU töpuðu öðrum leik sínum í röð í nótt þegar liðið lá fyrir Texas A&M 64-50.

Helena skoraði 7 stig, hirti 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar fyrir lið sitt en tapaði reyndar 7 boltum.

TCU er nú komið í jólafrí og á næst leik þan 30. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×