Ég var aldrei í fýlu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. maí 2008 12:02 Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells. Mynd/E. Stefán
Snæfellingarnir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson hafa báðir gefið kost á sér í íslenska körfuboltalandsliðið. Þeir ákváðu að gera það ekki síðastliðið sumar en hafa nú ákveðið að gefa kost á sér á ný. Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, valdi þá báða í 23 manna æfingahóp landsliðsins. „Ég var nú aldrei í fýlu," sagði Hlynur í samtali við Vísi. „Í fyrra sá ég mér ekki þann kost að vera með út af vinnutapi. En það verður breytt fyrirkomulag á æfingum landsliðsins í sumar og verður meira um æfingar um helgar. Mér líst því vel á þetta," sagði Sigurður. Hann verður líka í feðraorlofi í sumar sem gefur honum aukið svigrúm vegna vinnunnar. Það er mikið framundan hjá landsliðinu í sumar en liðið keppir á móti á Írlandi þar sem meðal annars háskólalið Notre Dame mætir til þátttöku. „Þetta eru bara einhverjir krakkar," sagði Hlynur í léttum dúr. „Þetta veðrur bara skítlétt." Hann segir þó í fullri alvöru að það verði gaman að mæta liðinu og gæti vel verið að það innihaldi upprennandi NBA-stjörnu. „Annars hef ég bara ekki hugmynd um hvernig þetta lið verður." Í haust hefst svo keppni í B-deild Evrópumótsins þar sem Ísland keppir um að vera meðal tveggja þjóða sem fá sæti í A-deildinni. Hlynur býst við hörkuleikjum þá. „Þetta fer mikið eftir því hvernig Svartfellingar ákveða að koma inn í þetta mót. Þetta er nýtt landslið eftir aðskilnaðinn við Serbíu en það er alveg ljóst að þetta er ekki B-þjóð. Þeir eiga marga góða leikmenn, bæði í NBA-deildinni og í bestu liðum í Evrópu." „Ég mun til að mynda mæta Nikola Pekovic sem leikur með Partizan Belgrad og er gríðarlega öflugur leikmaður. Mér finnst hann betri en margir í NBA-deildinni en hann var einfaldlega að drepa Meistaradeildina. Það verður gaman fyrir Íslendinga að sjá hann." „Svo eru Danirnir alltaf erfiðir en ég held að við eigum ágæta möguleika í þessum riðli, sérstaklega á heimavelli. En það fer mikið eftir því hvernig Svartfellingar tækla þessa keppni, hvort þeir sendi sína bestu menn til þátttöku." Ísland er í riðli með Dönum, Hollendingum, Svartfellingum og Austurríkismönnum. Fyrsti leikurinn í riðlinum verður þann 10. september gegn Dönum á heimavelli og þremur dögum síðar mætir liðið Hollandi á útivelli. Ísland mætir svo Svartfjallalandi á heimavelli þann 17. september og svo Austurríki á útivelli þann 20. september.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira