Þriggja marka sigur Hauka á Aftureldingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. desember 2007 21:33 Tveir leikmenn Aftureldingar reyna hér að verjast skoti Andra Stefan. Mynd/Anton
Haukar unnu í kvöld sigur á Aftureldingu, 29-26, og styrktu þar með stöðu sína á toppi N1-deildar karla. Haukarnir byrjuðu betur en Mosfellingar gáfust ekki upp og eftir að liðið var þremur mörkum undir jafnaði Afturelding metin í stöðunni 10-10. Gestirnir náðu síðan tveggja marka forystu fyrir hálfleik, 13-11. Fljótlega tóku Haukarnir völdin í leiknum á nýjan leik og bættu sóknarleik sinn til muna. Eftir að Haukar jöfnuðu metin juku þeir forskot sitt jafn og þétt og unnu á endanum sigur, 29-26, sem fyrr segir. Arnar Jón Agnarsson skoraði sjö mörk fyrir Hauka og þeir Freyr Brynjarsson og Andri Stefan fimm hver. Hjá Aftureldingu var Daníel Jónsson markahæstur með átta mörk en þeir Haukur Sigurvinsson og Hilmar Stefánsson skoruðu fjögur mörk hver. Haukar eru nú með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar, með 21 stig eftir þrettán leiki. HK getur reyndar jafnað árangur liðsins en HK er með sautján stig í öðru sæti en á tvo leiki til góða á Hauka. Afturelding er sem fyrr í næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig.
Olís-deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Sjá meira