Körfubolti

Loksins sigur hjá Roma

AFP

Jón Arnór Stefánsson skoraði 14 stig fyrir lið sitt Lottomatica Roma í kvöld þegar það vann sinn fyrsta leik í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Roma spilaði þarna sinn fyrsta heimaleik í keppninni og lagði þýska liðið Brose Baskets 81-57.

Roma er þar með komið af botni riðilsins en þýska liðið hafði heldur ekki unnið leik fyrir viðureign liðanna í kvöld. Jón Arnór hitti úr fjórum af ellefu skotum sínum utan af velli í kvöld og gaf fjórar stoðsendingar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×