Stoudemire ætlar að spila í kvöld 9. nóvember 2007 15:28 Amare Stoudemire styrkir lið Phoenix til muna AFP
Leikur Miami Heat og Phoenix Suns verður sýndur beint á Sýn klukkan hálf eitt í nótt. Miðherjinn Amare Stoudemire snýr aftur með liði Phoenix eftir meiðsli og Miami reynir að afstýra tapi í 18. leiknum í röð í öllum keppnum. Miami hefur byrjað tímabilið skelfilega og hefur tapað fyrstu fjórum leikjum sínum. Liðið er enn án hins magnaða Dwyane Wade sem er að jafna sig eftir uppskurði í sumar og þá er miðherjinn Shaquille O´Neal enn langt frá sínu besta. Miami hefur tapað 17 leikjum í röð sem er taphrina sem nær aftur í tvo síðustu leikina í deildarkeppninni síðasta vor. Þá tapaði liðið öllum fjórum leikjunum í úrslitakeppninni gegn Chicago, öllum sjö á undirbúningstímabilinu og svo fjórum fyrstu í deildarkeppninni nú. Phoenix hefur ekki byrjað leiktíðina mjög glæsilega heldur og tapað fyrir Atlanta í síðasta leik. Amare Stoudemire, sem var valinn í fimm manna úrvalslið deildarinnar í vor, hefur misst af þremur af fyrstu fimm leikjum liðsins í upphafi leiktíðar vegna meiðsla. Phoenix hefur unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni en þó liðið sé dálítið ryðgað í upphafi móts er enginn að örvænta þar á bæ. Liðið tapaði fimm af fyrstu sex leikjum sínum í upphafi leiktíðar í fyrra en vann samt 61 leik í deildarkeppninni.
NBA Mest lesið Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Fótbolti Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Gríðarjafn pakki eftir grindvískan sigur Uppgjörið: Valur - Haukar 59-85 | Öruggt hjá Haukum að Hlíðarenda Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Með 52 stig í þríframlengdum botnslag Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Sjáðu sigurkörfuna: „Elvar Friðriksson, ertu ekki að grínast“ „Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Ítalir fóru illa með Bretana Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Komst norður í snjó, búskap og dorg: „Dásamlegt“ Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Chris Bosh vaknaði í eigin blóðpolli: „Glaður að vera á lífi“ Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Skorti orku og ástríðu Orri með slitið krossband og þarf í aðgerð Íslendingarnir sem fá ekki að spila fyrir Ísland Sjá meira