Körfubolti

Logi með fjögur í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu gegn því finnska í haust.
Logi Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu gegn því finnska í haust.

Logi Gunnarsson skoraði fjögur stig þegar lið hans, Gijon, vann sautján stiga sigur á Akasvayu C.B. Vic, í spænsku C-deildinni í gær.

Logi var ekki í byrjunarliðinu en skoraði fjögur stig á þeim átta mínútum sem hann lék. Hann hitti úr tveimur af fjórum skotum sínum utan af velli og hið sama má segja um vítalínuna. Hann tók þar að auki þrjú fráköst í leiknum.

Gijon er á toppi deildarinnar og hefur unnið alla sjö leiki sína til þessa. Liðið er því á góðri leið með að tryggja sér sæti í B-deildinni á nýjan leik en liðið féll óvænt um deild síðastliðið vor. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×