Íslensk börn hætt komin í dönskum skólabruna Óli Tynes skrifar 9. október 2007 16:20 Þykkan reykjarmökk lagði yfir Sönderberg þegar skólinn brann.
Íslensk börn voru meðal nemenda í dönskum barnaskóla sem voru hætt komin þegar skólinn brann til kaldra kola í gær. Faðir íslenskrar telpu segir að hún hafi orðið að forða sér í svo miklum fllýti að hún hafi þurft að skilja eftir utanyfirföt sín og skólatösku, sem brann eins og annað. Eldurinn breiddist út með ógnarhraða í Dybböl skólanum sem er í bænum Sönderborg, skammt frá landamærunum að Þýskalandi. Sönderberg er 30 þúsund manna bær og þar búa um 300 íslendingar. Eldurinn kviknaði vegna rafmagnsbilunar í rofum í þaki hússins. Skólinn varð alelda á skammri stundu og var slökkviliðinu í Sönderberg sendur liðsauki frá tíu næstu nágrannabæjum. Meðal barna í skólanum er Alma María Ólafsdóttir, sem er á tíunda ári. Ólafur Baldursson, faðir hennar bjó í Sönderborg í mörg ár en er nú búsettur hér á landi. Ólafur segir að hratt og vel hafi gengið að rýma skólann, en yfir 100 nemendur þurftu að forða sér þaðan í skyndingu. Engum hafi orðið meint af, en börnin náttúrlega verið slegin, eins og hann sjálfur og aðrir foreldrar. Yfir 100 slökkviliðsmenn börðist við eldinn. Þeim tókst að verja næstu hús, en af skólanum eru brunarústirnar einar eftir.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira