Danir halda framhjá í bunkum Óli Tynes skrifar 5. september 2007 14:19 Hin konan.
Fjórir af hverjum tíu Dönum halda framhjá maka sínum einhverntíma ævinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Könnuðurinn hefur áhyggjur af því að framhjáhald fari að teljast eðlilegt. Konur óttast mest tilfinningaleg tengsl manna sinna við aðrar konur. Karlmenn óttast hinsvegar mest kynferðislegt samneyti kvenna sinna við aðra menn. Ingrid Ann Watson hefur verið hjónabandsráðgjafi í tíu ár og hún hefur nú skrifað bók um reynslu sína. Þar kemur meðal annars fram að 40 prósent Dana haldi framhjá. "Framhjáhald er að verða ok," segir Ingrid Ann. "Fólk virðir ekki lengur þau loforð sem það gefur um að vera trútt. Það vill hafa sinn vilja fram og ef það fær það ekki þá bollar það bara framhjá." Mismunandi áhyggjur karla og kvenna af framhjáhaldi eru skýrðar með þróunarkenningunni. Það sé konum eðlilegt að leita að bestu genum handa börnum sínum. Þær vilji stuðning frá manninum og að hann veiti börnunum öryggi og næringu. Ef hann bindist annarri konu tilfinningalegum böndum geti þær misst hann. Karlmenn hafa mestar áhyggjur af kynferðislegu samneyti kvenna sinna vegna þess að þá kemur meðal annars upp spurningin um faðerni barna þeirra.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira