Eineggja fjórburar fæddust í Bandaríkjunum Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 17. ágúst 2007 19:28
Eineggja fjórburar fæddust á sjúkrahúsi í Montana í Bandaríkjunum á sunndag. Einungis er vitað um 50 pör af eineggja fjórburum í heiminum, en líkurnar á að eignast slíka fjölbura eru einn á móti þrettán milljónum. Fjórburarnir eru stúlkubörn, fæddar tveimur mánuðum fyrir tímann, sem þykir nokkuð löng meðganga fyrir fjórbura. Autumn, Brooke, Calissa og Dahlia heilsast vel og þurfa ekki aðstoð við öndun. Þær voru teknar með keisaraskurði og vógu frá fjórum mörkum til fimm og hálfrar merkur. Foreldrarnir eru kanadískir og eiga fyrir tveggja ára gamlan dreng. Þau keyrðu rúmlega fimm hundruð kílómetra leið frá Calgary til Great Falls í Montana í Bandaríkjunum til að Karen gæti fætt börnin þar sem sjúkrahús í Calgary voru yfirfull. Foreldrarnir Karen og J.P. Jepp voru að vonum himinlifandi og sögðu enga tilfinningu þessu líka. Stúlkurnar verða líklega til umönnunar á sjúkrahúsi í sex vikur, en verða fluttar á sjúkrahús til Calgary við fyrsta tækifæri. Engin frjósemislyf komu við sögu eineggja fjórburanna, enda hafa þau ekki áhrif á eineggja fjölbura þar sem um er að ræða skiptingu fósturvísis í einu frjóvguðu eggi. Síðast er vitað um eineggja fjórburafæðinu í apríl árið 2006 á Indlandi.
Innlent Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Fleiri fréttir Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Sjá meira