Við erum komnir aftur -Vladimir Putin Óli Tynes skrifar 17. ágúst 2007 14:45 Vladimir Putin. MYND/AP
Vladimir Putin tilkynnti í dag að Rússar hefðu sent fjórtán langdrægar sprengjuflugvélar í eftirlitsflug langt útfyrir landamæri ríkisins. Orrustuþotur og eldsneytisvélar fylgdu þeim eftir. Forsetinn sagði að ákveðið hafi verið að hefja á ný langflug sprengjuflugvéla. Þær væru komnar til þess að vera. Putin lýsti þessu yfir á blaðamannafundi í tilefni af sameiginlegum heræfingum Rússa og Kínverja. Forsetinn sagði að ákvörðunin hefði verið tekin vegna ógnar sem Rússlandi stafaði af öðrum herveldum. "Árið 1992 hættum við einhliða langflugi með sprengjuflugvélum okkar til fjarlægra eftirlitssvæða. Því miður fóru ekki aðrir að okkar fordæmi." Ástæðan fyrir því að Rússar hættu þessu flugi árið 1992 var náttúrlega sú að þeir höfðu ekki efni á því. Efnahagur Rússlands er nú hinsvegar mjög að braggast og Putin hefur stóraukið fé til hermála. Hann ætlar sér að endurheimta fyrra hlutverk Rússlands sem stórveldis. Að hefja kaldastríðsflug á nýjan leik er liður í því. Fyrir utan heraflann eiga Rússar gríðarlegar birgðir af gasi og olíu. Og hafa verið ófeimnir við að beita þeim sem vopni gegn ríkjum sem standa upp í hárinu á þeim. Þetta hafa mörg nágrannaríki þeirra mátt reyna á eigin skinni. Og það hefur vakið ugg í Vestur-Evrópu sem verður sífellt háðari Moskvu í orkumálum. Rússar hafa nú slegið eign sinni á Norðurpólinn og létu kafbát setja rússneska fánann niður undir ísnum þar fyrir nokkrum dögum. Þar eru taldar vera ómældar birgðir af gasi, olíu og allskonar verðmætum málmum.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira