Vill banna Kóraninn í Hollandi Óli Tynes skrifar 8. ágúst 2007 10:19 Skopteiknarar fjalla gjarnan um baráttu Wilders gegn múslimum.
Hollenski þingmaðurinn Geert Wilders vill láta banna Kóraninn í Hollandi. Hann kallar Kóraninn fasistarit og líkir honum við bók Hitlers, Mein Kampf. Í grein í hollensku dagblaði í dag segir Wilders; Bönnum þessa ömurlegu bók eins og Mein Kampf er bönnuð. Sendum múslimum þau skilaboð að Kóraninn verður ekki notaður til að æsa til ofbeldis í þessu landi." Meginstefna flokks Wilders er andstaða við innflytjendur. Flokkurinn vann níu af 150 sætum á hollenska þinginu í nóvember síðastliðnum. Wilders er sérlega í nöp við múslima og hefur varað við því að holskefla þeirra muni bera hollensku þjóðina ofurliði. Um ein milljón múslima býr nú í Hollandi, sem er þekkt fyrir umburðarlyndi á flestum sviðum. Innflytjendamál og aðlögun eru ekki ofarlega í hinni pólitísku umræðu þrátt fyrir tilraunir Wilders í þá átt. Wilders hefur verið undir lögregluvernd síðan herskáir múslimar hótuðu að myrða hann árið 2004. Talin er full ástæða til að taka þær hótanir alvarlega, eftir að kvikmyndagerðarmaðurinn Theo Van Gogh var myrtur árið 2004. Ayhan Tonca, formaður regnhlífarsamtaka múslima í Hollandi gefur hinsvegar lítið fyrir nýjustu skrif Wilders. Hann segir að þetta sé bara dæmigerður Wilders og best fyrir alla að leiða skrifin hjá sér.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira