Brjóstaskorugrein fór fyrir brjóstið á stuðningsmönnum Hillary 27. júlí 2007 22:45 MYND/AP
Stuðningsmenn Hillary Clinton, frambjóðanda í forvali Demókrata til bandarísku forsetakosninganna, nýta sér nú tískugrein sem birtist í Washington Post til að safna fé í kosningasjóð hennar. Tölvupóstur sem Ann Lewis, einn af ráðgjöfum Hillary, skrifar undir hefur verið sendur vítt og breitt um Bandaríkin þar sem þess er farið á leit við viðtakendur að þeir "taki sér stöðu gegn ruddaskap og ómerkilegheitum í bandarískri menningu." Í bréfinu er vísað í grein eftir tískublaðamanninn Robin Givhan, sem birtist í Washington Post þann 20. júlí síðastliðinn. Þar fjallaði hann um fötin sem Hillary klæddist á meðan hún flutti ræðu í öldungadeild þingsins um þann mikla kostnað sem fylgir framhaldsmenntun. Hillary klæddist svartri fráhnepptri skyrtu á meðan hún flutti ræðuna. Í greininni í Washington Post sagði tískublaðamaðurinn að örlað hefði fyrir kynþokka í hinu íhaldssama andrúmslofti sem ríki á þinginu. Í bréfinu sem Lewis skrifaði segir meðal annars. "Hver hefði trúað því að The Washington Post myndi skrifa 746 orða grein um brjóstaskoru Hillary?" Lewis bætti svo við að það væri ekki við hæfi að fjölmiðlar töluðu um líkamsparta frambjóðenda. "Í hreinskilni sagt er það móðgandi að fjölmiðlar einblíni á líkama kvenna í stað hugmynda þeirra. Það er móðgandi fyrir allar konur sem vilja láta taka sig alvarlega. Það er móðgun við dætur okkar sem og syni sem eru undir stöðugum þrýstingi frá fjölmiðlum um að þroskast hraðar."
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira