Kínverjar hvetja Vesturlönd til þess að sýna þolinmæði vegna Darfur Jónas Haraldsson skrifar 27. júlí 2007 10:19
Kína varði í morgun afstöðu sína til mála í Darfur-héraði Súdan og hvatti Vesturlönd til þess að sýna þolinmæði í málefnum þess. Á sama tíma gagnrýndu Vesturlönd Kína og sögðu að afstaða þeirra gæti dregið úr þeirri velvild sem landið fær vegna Ólympíuleikanna sem fara fram í Peking á næsta ári. Kínverjar hafa þrýst á stjórnvöld í Súdan að samþykkja sameiginlegt herlið friðargæsluliða frá Sameinuðu þjóðunum og Afríkusambandinu sem á að reyna að binda enda á blóðbaðið í Darfur-héraði. Talið er að fleiri en 200 þúsund manns hafi látið lífið í Darfur og fleiri en 2,1 milljón hafi þurft að flýja heimili sín vegna ástandsins. Vesturlönd hafa hins vegar lagt til að myndað verði 26 þúsund manna sameiginlegt herlið Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins í skjóli 7. kafla sáttmála Sameinuðu þjóðanna en hann heimilar beitingu herafls án tillits til óska ríkisstjórna þeirra landa sem herliðið á að starfa í. Stjórnvöld í Súdan samþykktu loks eftir margra mánaða viðræður að sameiginlega herliðið fengi að koma til landsins. Þau hafa hins vegar verið á móti því að það verði stofnað í skjóli 7. kaflans. Kínverjar hafa hingað til stutt þá afstöðu stjórnvalda í Súdan og segja að slíkar aðferðir muni ekki áorka neinu. Kínverjar eiga mikilla viðskiptahagsmuna að gæta í Súdan en þeir eru stærsti erlendi fjárfestirinn í landinu og kaupa auk þess meginþorra allrar þeirrar olíu sem landið framleiðir.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira