Ég trampaði á hálsi hennar til að ná sálinni út Óli Tynes skrifar 19. júlí 2007 14:43 Old Baily dómshúsið í Lundúnum.
Breskur kviðdómur heyrði í dag lýsingu á skelfilegum endalokum tvítugrar kúrdiskrar stúlku. Fjölskylda hennar og vinir myrtu hana fyrir að kasta rýrð á heiður fjölskyldunnar. Hún hafði orðið ástfangin af röngum manni. Henni var nauðgað og misþyrmt áður en hún var kyrkt. Banaz Mahmod var neydd til þess að giftast íröskum kúrda þegar hún var 17 ára gömul. Hjónabandið var óhamingjusamt og Banaz yfirgaf eiginmann sinn. Síðar varð hún ástfangin af írönskum kúrda. Fjölskyldan ákvað þá að myrða hana. Viðstaddir morðið voru faðir hennar, föðurbróðir, vinur fjölskyldunnar og tveir aðrir menn sem enn ganga lausir. Faðirinn og föðurbróðirinn voru sakfelldir fyrir morðið í síðasta mánuði. Í dag heyrði kviðdómurinn svo sögu fjölskylduvinarins. Kviðdómurinn heyrði hvernig henni var nauðgað hrottalega. Svo var hún barin og henni misþyrmt á allan hátt áður en hún var kyrkt með skóreim. Kviðdómurinn fékk að heyra samtal sem fjölskylduvinurinn átti við vin sinn í fangelsinu. Þeir hlógu að örlögum Banaz. Fjölskylduvinurinn lýsti því hvernig hann hafði myrt hana. "Ég sparkaði í hana og trampaði á hálsi hennar, til þess að ná sálinni út. Ég sá hana alls nakta. Aðeins í nærbuxum eða undirfötum." Eftir morðið var líki Banaz troðið í ferðatösku sem farið var með frá Lundúnum til Birmingham. Þar var taskan grafin í bakgarði og fannst ekki fyrr en þrem mánuðum síðar.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira