Rússar hóta að reka 80 breska diplomata úr landi Óli Tynes skrifar 17. júlí 2007 14:28 Frá Moskvu.
Rússar hafa hótað að reka 80 breska diplomata úr landi í hefndarskyni fyrir brottrekstur fjögurra rússneskra diplomata frá Bretlandi. Rússarnir voru reknir vegna tregðu stjórnvalda til þess að framselja meintan morðingja rússneska njósnarans Alexanders Litvinenkos. Rússar telja sig órétti beitta. Þeir benda meðal annars á að Bresk stjórnvöld hafi á undanförnum árum neitað að framselja fjölmarga rússneska glæpamenn sem þar hafi fengið hæli. Það sé því tvískinningur hjá Bretum að gera svona mikið úr því að fá ekki einn mann framseldan. Viðbrögð Rússa, ef þeir reka áttatíu menn úr landi fyrir fjóra, eru býsna harkaleg. Þau eru þó í fullu samræmi við sívaxandi hörku þeirra í alþjóðlegum samskiptum. Veldi Rússlands eykst stöðugt, ekki síst vegna gríðarlegra orku-auðlinda þeirra. Vestur Evrópa fær þegar yfir fjórðung af gasi sínu og olíu frá Rússlandi. Á undanförnum misserum hafa Rússar hiklaust lokað fyrir olíu og gas til nágrannaríkja sem þeir hafa átt í útistöðum við. Það hafa þeir enn ekki gert við Evrópu. Stjórnmálaskýrendur segja hinsvegar að það sé grundvallaratriði í stefnu Vladimirs Putins forseta að koma því til skila að Rússar séu ekki lengur í sárum eftir að Sovétríkin liðuðust í sundur. Rússland sé nú aftur orðið stórveldi í heimsmálunum og það sé eins gott að því sé sýnd tilhlýðileg virðing.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira