Alþjóðakjarnorkumálastofnunin staðfestir lokun kjarnakljúfs Norður-Kóreu Jónas Haraldsson skrifar 16. júlí 2007 07:13 Notaðar plútóníum stangir sjást hér í kælitanki í kjarnorkuverinu í Yongbyon. Myndin er frá árinu 1996. MYND/AP
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin staðfesti í nótt að Norður-Kórea hefði lokað kjarnorkuveri sínu í Yongbyon. Eftirlitsmenn stofnunarinnar sögðu að lokun kjarnorkuversins væri aðeins fyrsta skrefið í afvopnunarferli Norður-Kóreu. Verið sem nú var verið að loka framleiddi plútóníum sem hægt var að nota í kjarnorkusprengjur. Næsta skref verður að staðfesta að stjórnvöld hafi einnig lokað öðrum verksmiðjum sem komu að því að framleiða íhluti fyrir kjarnorkuverið. Mohamed ElBaradei, framkvæmdastjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, sagði að það myndi taka eftirlitsmenn hennar um mánuð að koma fyrir innsiglum og eftirlitsbúnaði til þess að tryggja að kjarnakljúfurinn yrði ekki í notkun. Stjórnvöld í Norður-Kóreu skýrðu frá því á laugardaginn að þau hefðu lokað verinu. Á sama tíma fengu þau fyrstu sendingu af olíu frá Suður-Kóreu en samkvæmt afvopnunarsamkomulaginu sem náðist þann 13. febrúar, fær landið milljón tonn af olíu, loforð um að ekki verði ráðist gegn skotmörkum í landinu og aukinn aðgang að alþjóðamörkuðum. Christopher Hill, aðalsamningamaður Bandaríkjanna, sagði að ef Norður-Kórea myndi losa sig algjörlega við kjarnorkuáætlun sína, væri allt mögulegt.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira