Evrópusambandið slær í gegn á YouTube Jónas Haraldsson skrifar 4. júlí 2007 18:45
Eitt vinsælasta myndbandið á vefveitunni YouTube þessa dagana er myndband frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Myndbandið fjallar hins vegar ekki um landbúnaðarsáttamála þess heldur er það samantekt af kynlífsatriðum úr evrópskum bíómyndum. Framkvæmdastjórnin opnaði nýverið síðu á Youtube og setur þar inn alls konar myndbönd sem hún lætur framleiða fyrir sig. Þar á meðal er myndbandið „Let's come together", sem gæti útlagst á íslensku sem „Komum saman." Því er ætlað að sýna brot úr evrópskum bíómyndum sem sambandið hefur styrkt. Fréttamannafundur Framkvæmdastjórnarinnar í dag um reglugerðir á vínmarkaði í Evrópu breyttist brátt í umræður um myndbandið og efni þess. Fréttamenn spurðu hvort að þetta væri besta leiðin til þess að eyða skattpeningum Evrópubúa og hvort að titill myndarinnar skilaði sér á hinum tungumálum Evrópusambandsins. Talsmaður Framkvæmdastjórnarinnar sagði að myndbandið hefði ekki hlotið neina gagnrýni þær fjórtán vikur sem það hefur verið á YouTube. Hann hafnaði allri gagnrýni og sagði Evrópusambandið ekki vera biblíubelti. Hann bað fréttamenn að hafa húmor og fara ekki rífast um hvað væri klám, hvað erótík og hvað væri eðlilegt að horfa á í sjónvarpi.
Erlent Mest lesið Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Evran, Icelandair, brottfararstöð og Bubbi á Sprengisandi Innlent Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Erlent Fleiri fréttir Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Sjá meira