Dregin marga kílómetra undir sendiferðabíl Óli Tynes skrifar 5. júní 2007 15:35 Lögreglan gat rakið blóðslóðina eftir sendiferðabílinn.
Tveir menn hafa verið handteknir í Flórída fyrir að draga konu margra kílómetra leið undir sendiferðabíl sínum. Lögreglan hafði upp á sendiferðabílnum með því að fylgja blóðslóðinni á veginum. Þegar hún fann bílinn var konan látin og mennirnir flúnir af vettvangi. Sandra Hall var 44 ára gömul og bjó í Fort Lauderdale í Flórída. Mennirnir tveir óku utan í Cadillac bíl fjölskyldunnar. Sandra reyndi að koma í veg fyrir að þeir styngju af með því að stilla sér upp fyrir framan bíl þeirra. Viðbrögð þeirra voru hinsvegar að keyra á hana á fullri ferð. Hún kastaðist í loft upp og festist svo undir afturhluta sendiferðabílsins. Mennirnir óku svo á brott á mikilli ferð og drógu hana með sér. Það var ekki fyrr en eftir margra kílómetra akstur sem þeir loks stoppuðu, stukku út og lögðu á flótta. Lögreglan gat hinsvegar rakið bílinn til þeirra og þeir voru handteknir þar sem þeir voru komnir um borð í flugvél á leið til Grikklands. Þeir eiga yfir höfði sér lífstíðar fangelsi.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira