Gáfu út 10.000 vegabréf til svikahrappa 20. mars 2007 22:53 Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. MYND/AP
Þúsundum manna, og þar á meðal tveimur sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverkaárásir, tókst að verða sér út um vegabréf hjá breska innanríkisráðuneytinu á fölskum forsendum á síðastliðnu ári. Allt í allt er talið að um tíu þúsund vegabréf sé um að ræða. Breska innanríkisráðuneytið viðurkenndi þetta í dag en sagði jafnframt að brátt myndi það byrja á viðtölum við umsækjendur til þess að koma í veg fyrir að svona nokkuð kæmi fyrir. Hryðjuverkamennirnir tveir, sem urðu sér úti um vegabréf án vandkvæða, voru annars vegar dæmdir fyrir sprengjuárás í Marokkó og hins vegar fyrir að hafa ætlað að sprengja gat á neðanjarðarlestakerfið í Lundúnum. Breska ríkisstjórnin segir að þetta staðfesti þörfina á því að ný einkennisspjöld, sem innihalda meðal annars lífsýni, verði tekin í gagnið. Stjórnarandstæðingar benda hins vegar á að þeir sem nú þegar hafi fengið vegabréf á fölskum forsendum geti nýtt sér þau til þess að fá hin nýju einkennisspjöld á löglegan hátt. Talið er að allt að um 16.500 manns hafi sótt um vegabréf á fölskum forsendum á síðasta ári og að um 10.000 þeirra hafi fengið vegabréf. Breska innanríkisráðuneytið gefur árlega út 6,6 milljónir vegabréfa.
Erlent Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Sjá meira