Lentu í deilum við konu á Hebron 20. mars 2007 18:45
Íslenskur karlmaður um tvítugt var færður til yfirheyrslu hjá ísrelsku lögreglunni í Hebron á Vesturbakkanum í fyrradag. Ísraelsk kona sem þau lentu í útistöðu við hafði þá kært danska vinkonu hans fyrir líkamsárás. Atvikið náðist allt á myndband. Haukur Hilmarsson er tvítugur. Hann sinnir mannúðarstarfi í Hebron. Hann var á gangi með danskri vinkonu sinni þegar þau veittu því athygli að unglingar úr hópi ísraelskra landnema veittust að tveimur palestínskum strákum og hugðust grýta þá. Haukur byrjaði að mynda atburðina og vinkona hans skarst í leikinn. Hermenn í næsta nágrenni komu í veg fyrir átök. Það var þá sem ísraelsk kona skarst í leikinn. Hún fór að mynda Hauk og vinkonu hans og meinaði henni för. Hún hrópaði að þeim ókvæðis orð á Hebresku, sagði þau nasista og að þau ættu að fara aftur til Auswitchz. Haukur segir konuna hafa viljað að þau hættu að mynda. Hann segir árásir landnema á Palestínumenn algengar í Hebron og Ísraelar vilji ekki að þær séu festar á filmu. Að lokum óskaði ísraelska lögreglan að Hauks og vinkona hans kæmu til skýrslutöku á lögreglustöð sem þau samþykktu. Þar máttu þau vera í fjórar klukkustundir en skýrslutakan sjálf tók aðeins um hálftíma. Konan hefur kært vinkonu Hauks fyrir líkamsárás. Haukur á ekki von á því að málið gegn vinkonu hans fari lengra í kerfinu. Myndband sitt sýni að ekki hafi verið um líkamsárás að ræða. Hann býst við því að málið verði látið niður falla.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira